Um Taekwondo
Taekwondo er kóreisk bardaga- og sjálfsvarnaríþrótt. Hún er þróuð frá gamalli hernaðarlist Kóreumanna og byggist fyrst og fremst á sjálfsvörn.
Íþróttin eflir styrk, snerpu og liðleika, ásamt því að auka sjálfstraust, sjálfsstjórn og einbeitingu.
Taekwondo skiptist í tvo meginhluta - Poomse og Sparring. Poomse er sú hlið Taekwondo þar sem einn aðili framkvæmir tæknilegu hlið hennar, en Sparring er aftur á móti sjálf bardagahliðin þar sem tveir eða fleiri aðilar koma saman og berjast."
Íþróttin er viðurkennd Ólympíuíþrótt og var sýningaríþrótt á Ólympíuleikunum í Seoul í Suður-Kóreu 1988 og síðan aftur í Barcelona á Spáni 1992, en var síðan tekin inn sem keppnisíþrótt á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu 2000.
The World Taekwondo Federation eru alþjóðleg Taekwondo-sambönd. WTF Official Site.
Öll íslensku Taekwondofélögin eru í WTF.