04.04 2011 22:58

Fyrsti Íslandsmeistaratitill Breiðabliks í Taekwondo

Rut Guðnadóttir, Íslandsmeistari í Taekwondo

Rut Guðnadóttur varð þann 19 mars sl. fyrsti Íslandsmeistari Breiðabliks í Taekwondo . Rut varð þar með fyrsti Ísl.meistari Kópavogs í Taekwondo með því að sigra unglingaflokk kvenna -63 kg. Rut hafði algjöra yfirburði í sínum bardögum og sigraði þá alla með miklum mun. Þess má geta að Taekwondo-deild Breiðabliks er aðeins 7.mánaða gömul

Þjáfarar og stjórn deildarinnar eru að sjálfssögðu afar ánægð með titilinn og stolt af Rut.
Einnig unnust nokkur gull, silfur og brons á barnamóti Aftureldingar; Varmá open , fyrir skömmu og stóðu okkar krakkar sig alveg sérstaklega vel.

Til baka