Verðlaunaferð á Gullmót KR
Sundmenn Breiðabliks fóru mikinn á Gullmóti KR um síðustu helgi. Gullmótið er eitt fjölmennasta mót ársins og firnasterkt. Í ár voru margir góðir erlendir sundmenn meðal keppenda. Breiðabliksliðið stóð sig með miklum sóma einsog á undanförnum mótum og voru allir að ná góðum bætingum. Sundmenn okkar voru á palli í 27 skipti. Alls voru Blikar með 10 gull, 10 silfur og 7 brons.
Brynjólfur Óli Karlsson sigraði öll sín sund og hlaut gull í 200 fjór, 50 flug, 100 og 400 skrið , 100 og 200 bak. Hann var innan við sekúnda frá íslandsmeti sveina í bæði 100 og 200 metra baksundi. Þá var Brynjólfur stigahæsti einstaklingur drengja 12 ára og yngri með 871 FINA stig.
Patrik Viggó Vilbergsson hlaut gull í 50 skrið, 50 bak og 50 bringu, silfur í 50 flug, 100 skrið og 100 bak
Elvar Smári Einarsson hlaut gull í 100 bringu, silfur í 200 bringu og brons í 50 flug
Ragnheiður Karlsdóttir hlaut silfur í 100 flug og 100 skrið, brons í 200 fjór, 100 skrið og 400 skrið
Ingimar Logi Guðlaugsson fékk silfur í 100 bak og brons í 400 skrið. Ingimar var þriðji stigahæsti karl 15-17 ára karla með 1701 FINA stig
Harpa Þöll Eiríksdóttir hlaut silfur í 200 bringu
Sveinbjörn Pálmi Karlsson fékk brons í 50 flug
Guðný Erna Bjarnadóttir var þriðja stigahæsta konan 18 ára og eldri með 1711 FINA stig
Boðsundssveit karla náði silfri í 4x100 fjór og boðassundsveit sveina fékk brons í 4x50 skrið
Boðsundssveit kvenna hlaut silfur í 4x100 skrið
Auk alls þessa voru okkar sundmenn í 4.-6. Sæti í mörgum greinum.
Heildarúrslit frá mótinu má finna hér.
Til baka