Að æfa sund
Margar leiðir til að æfa sund
Sundæfingar eru í boði fyrir krakka frá 3. ára og upp í 90 ára og yfir !
Sundskóli Breiðabliks
Sundsprettur 4-8 ára (www.sundsprettur.is). Allan veturinn eru í gangi 6 vikna námskeið, tvisvar í viku fyrir 4 til 8 ára iðkendur sem eru ekki tilbúnir til þess að fara beint inn á æfingar hjá æfingahópum innan sunddeildarinnar. Kennt er bæði í Kópavogs- og Salalaug. Iðkendur eru aldrei fleiri en 10 í einu og stjórnendur eru vanir, menntaðir íþróttafræðingar með aðstoðarfólk. Námskeiðin eru mjög vinsæl – færri komast að en vilja og því er rétt að hafa samband sem fyrst með tölvupósti á .(JavaScript must be enabled to view this email address).
Eldri en 7 ára.
Krakkar geta byrjað að æfa sund hvenær sem er og á hvaða aldri sem er. Einungis þarf að hafa samband við sunddeildina til að meta í hvaða hópi rétt er að hefja æfingar en aldursbil hópanna er eftirfarandi: E hópur 7-9 ára, D hópur 8-11 ára, C hópur 10-12 ára. C, D og E hópar æfa bæði í Kópavogs- og Salalaug. B hópur 11-13 ára og A hópur 14 ára og eldri. A og B hópar æfa að mestu í Kópavogslaug en einhverjar æfingar hjá A-hóp fara fram í Salalaug. Æfingatöflur má finna á www.breidablik.is – sund. Einnig er hægt að senda tölvupóst á stjórn sunddeildar, sjá nánar á sundvefnum. Nýráðinn yfirþjálfari sunddeildarinnar er Arna Þórey Sveinsbjörnsdóttir (.(JavaScript must be enabled to view this email address)) en hún hefur meðal annars tekið þátt í þjálfun unglingalandsliðs Íslands.
Eldri en 25 ára
Garpar er hópur fólks á besta aldri sem eiga það sameiginlegt að hittast þrisvar í viku til að æfa sund með þjálfara. Sumir hafa áður æft sund aðrir ekki, sumir hafa alltaf verið íþróttamenn aðrir ekki. Æfingaáætlanir eru tvískiptar, fyrir byrjendur og lengra komna. Garpar geta einnig tekið þátt í sundmótum. Eftir sundæfingar spjöllum við saman í heita pottinum og á laugardögum fáum við okkur kaffi saman í bakaríinu. Sú nýjung verður í ár að að hægt verður að fá æfingar hjá þjálfara fyrir vikuna þannig að viðkomandi geti æft á eigin tíma ef hann kemst ekki á reglulegum æfingatíma.
Þríþrautarmiðuð sundþjálfun !
Sú nýjung verður í ár hjá görpunum að hægt veður að fá sundþjálfun sérstaklega miðaða að þríþraut. Viðkomandi segir þjálfara frá markmiðum sínum eins og t.d. hvaða keppni hann hafði hugsað sér að taka þátt í og miðar þjálfari sundþjálfunina sérstaklega að þeim markmiðum. Æfingar verða með görpunum en einnig verður hægt að fá æfingar fyrir vikuna svo viðkomandi hafi þann kost að koma á eigin tímum.
Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna (4 vikur)
Á námskeiðum er byrjað frá grunni og öll undirstöðuatriði skriðsunds kennd. Námskeiðin eru fyrir alla þá sem hafa áhuga á því að læra skriðsund. Áhersla er á öndun, flot og líkamsbeitingu í sundi. Nánari upplýsingar á www.sundsprettur.is.