05.01 2012 16:31

Sundmaður og sundkona Kópavogs árið 2011.

Íþróttahátið Kópavogs var haldin í Salnum í Kópavogi 4. janúar 2012. Þar voru Ingimar Logi Guðlaugsson og Athena Neve Leex kjörin sundmaður og sundkona ársins 2011 í flokki 13-16 ára. Kári Steinn Karlsson frjálsíþróttamaður var kjörinn íþróttamaður ársins og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir fimleikakona kjörin íþróttakona ársins.

Við óskum Ingimar og Athenu, sem og öðrum sem fengu viðurkenningu innilega til hamingju með árangurinn.  

Til baka