Frábær árangur Blika á Reykjavíkurleikunum
Sundmenn Breiðabliks voru allir að gera góða hluti á Reykjavíkurleikunum sem fram fóru í Laugardalslaug um síðustu helgi. Mikil stakkaskipti hafa orðið á árangri afrekshópsins okkar frá því í haust og miklar bætingar voru í nánast öllum sundum.
Í ár var hópurinn sem var með lágmark á leikanna mun stærri en verið hefur og einnig náðu mjög margir sundmenn inn í úrslit. Yngri sundmenn voru að gera það mjög gott og komust þeir oft á verðlaunapall í flokknum 14 ára og yngri. 35 Breiðabliksmet féllu og einhverjir voru að ná sínum fyrstu lágmörkum á íslandsmótið í 50 metra laug. Nokkrir af eldri sundmönnunum voru rétt við verðlaunasæti og má þar nefna að Viktor Máni var fjórði í 50 og 100 baki, Ingimar Logi var fimmti í 200 baki, Siggi Dan var fimmti í 200 bringu, Sveinbjörn Pálmi var sjötti í 200 fjór, Harpa Þöll var fimmta í 200 bringu og Guðný Erna var sjötta í 100 skriði.
Það er ljóst að miðað við hvað mótið var sterkt og margir góðir erlendir sundmenn voru þátttakendur að það verður mjög spennandi að fylgjast með árangrinum á næstu mótum hjá okkar fólki.
Uppfærða metaskrá má finna hér
Árangur liðsins í heild fá finna hér
Til baka