01.02 2012 12:06
Skíðablikar voru í æfingaferð í Austurríki
Félagar úr skíðadeild Breiðabliks voru að koma heim úr æfingaferð til Montafon í Austurríki.
En alls voru 55 manns í ferðinni, þar af um 25 krakkar við æfingar. Ferðin gekk mjög vel í alla staði og tóku krakkarnir miklum framförum. Aðstæður í Austurríki voru frábærar og deildin fékk lokaðan bakka undir æfingarnar.
Það var mikil og góð stemmning í hópnum.
Hér má sjá myndir úr ferðinni.
Til baka