14.02 2012 09:47

Konudagur í Breiðabliksskála í Bláfjöllum

Konudagurinn verður haldinn hátíðlegur í skála Breiðabliks í Bláfjöllum nk. sunnudag 19. febrúar.

En þar verður kökuhlaðborð til styrktar skíðadeildinni frá kl. 14 - 16.

Hvernig væri að bjóða frúnni og jafnvel allri fjölskyldunni á skíði á sunnudaginn og enda svo í gómsætu kökuhlaðborði í Breiðabliksskálanum, já eða einfaldlega fá sér rúnt í fjöllin og gæða sér á kökum og kaffi??

Verð er kr. 1.500.- fyrir 12 ára og eldri, kr. 750.- fyrir 5-12 ára og frítt fyrir yngri.

Innifalið í verðinu er kökuhlaðborð, heitt súkkulaði með rjóma, kaffi eða te.  Gosdrykki þarf fólk að greiða fyrir sérstaklega.

Hvetjum alla til að mæta og fá sér góðar kræsingar í tilefni dagsins og styrkja skíðadeildina í leiðinni.

Til baka