Niðurgreiðsla
Frá og með haustinu 2009 greiðir Kópavogsbær styrk vegna barna sem fædd eru á árunum 1992 - 2004. Frá janúar 2009 gilda niðurgreiðslurnar einnig fyrir myndlistar- og leiklistarnámskeið.
Styrkurinn fyrir eina grein getur orðið allt að 15 þúsund krónur á ári. Hvert barn getur fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og / eða tómstundagreina og samtals getur styrkurinn því orðið kr. 30.000,- að hámarki á ári. Ef iðkun greinar er annarskipt þá er greitt hálft gjald fyrir hverja önn að hámarki kr. 7.500,-, þó aldrei hærra en kr. 15.000,- fyrir árið.
Framkvæmd niðurgreiðslunnar er háttað þannig að íþróttafélögin innheimta æfingagjöldin og sjá um að sækja styrkinn til bæjarins. Þetta þýðir að ef æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 30.000,- greiðir foreldri / forráðamaður kr. 15.000,- til félagsins og félagið sækir framlagið, kr. 15.000,- til bæjarfélagsins*.
Iðkandi sem er í tómstundafélagi, eða forráðamaður hans, þarf að sækja styrkinn á skrifstofu ÍTK, Fannborg 2, 1. hæð. Með framvísun greiðslukvittunar fyrir viðkomandi grein verður styrkurinn greiddur út.
*Þetta á einnig við um Skátafélagið Kópa
Þeir sem stunda tómstundir og íþróttir utan Kópavogs en eiga lögheimili í bæjarfélaginu þurfa að sækja styrkinn á skrifstofu ÍTK, Fannborg 2, 1. hæð. Með framvísun greiðslukvittunar fyrir viðkomandi grein verður styrkurinn greiddur út.
Reglur og skilyrði fyrir styrk vegna niðurgreiðslu æfingagjalda eru eftirfarandi;
- Að barnið eigi lögheimili í Kópavogi.
- Að barnið iðki íþróttir/tómstundir á ársgrundvelli.
- Iðkandi getur aðeins fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina.
- Styrkur getur aldrei orðið hærri en æfingagjald viðkomandi íþrótta-/ tómstundagreinar.
- Hámarksstyrkur á hverja grein er kr. 15.000,-
- Við greiðslu æfingagjalda kemur styrkurinn til frádráttar æfingagjaldi.
- Til að félögin/iðkendur fái styrkinn greiddan frá ÍTK þarf að framvísa staðfestingu á greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.
- Til að einstaklingar sem stunda tómstundir eða íþróttir utan Kópavogs fái styrkinn greiddan frá ÍTK þarf að framvísa staðfestingu á greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.
- Að um sé að ræða skipulagt íþrótta- og tómstundastarf.
Niðurgreiðsla æfingagjalda barna sem búa ekki í Kópavogi fer eftir reglum viðkomandi sveitarfélags.