Reykjavíkuleikar 2012: Alþjóðleg kraftlyftingakeppni
RIG2012 er tignarlegur vettvangur fyrir kraftlyftingaíþróttina
REYKJAVÍKURLEIKARNIR í íþróttum 2012 (REYKJAVIK International Games 2012 – RIG2012) verða haldnir daganna 19.-22. janúar 2012.
KEPPNISRÉTT á RIG2012 eiga þær löglegu íþróttir sem stundaðar eru innan sérsambanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem og innan Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) - þ.m.t. kraftlyftingar undir lögsögu Kraftlyftingasambands Íslands – 28. Sérsambands ÍSÍ sem og Kraftlyftingadeildar Ármanns (mótshaldara).
Vefsíða RIG2012 – veflykill:
http://www.rig.is/
RIG á facebook – veflykill:
http://www.facebook.com/pages/RIG-Reykjavik-International-Games/120107388019704?v=wall
Vefur ÍBR – veflykill:
http://www.ibr.is/
Kraftlyftingadeild Ármanns hélt Alþjóðlega réttstöðulyftumótið- International Dead-Lift Meet-RIG2011 með miklum glæsibrag og var alþjóðamótið kraftlyftingaíþróttinni mikil lyftistöng.
Sjá m.a. fjöldamörg MYNDBÖND frá International Dead-Lift Meet-RIG2011 (neðst í þessari fregn).
Sýnt var í 5.-6. mínútur frá Alþjóðlega réttstöðulyftumótinu 2011 á RÚV-Sjónvarp og kom hlutur afreksíþróttamanna Kraftlyftingasambands Íslands undir blálokin eða frá 54.mínútu til 60. mínútu.
Það var fínt viðtal við Maríu E. Guðsteinsdóttur (mótsstjóra og keppanda) í sjónvarpssal sem kom mjög vel fram og fyrir – svo við Auðunn Jónsson sem og Júlían Jóhann Karl Jóhannsson – sem báðir stóðu sig vel.
Hér er veflykill á endurvefútsendingu á RÚV-Sjónvarp frá Alþjóðamótinu í réttstöðulyftu sem hluti af „Samantekt” frá Reykjavík International Games 2011:
Endursjónvarspútsending RÚV frá RIG2011 á gamla vef RÚV – veflykill:
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4571818/2011/01/22/
Frétt á eldri vef Breiðabliks (Kraftlyftingadeild) (dags. 22.01.2011) um fjölmiðlaumfjöllun o.fl. vegna International Dead-Lift Meet-RIG2011 – veflykill: http://vu2043.ispcp-01.zebra.is/gamli/frett.php?id_frett=7529&b=1
Frétt á eldri vef Breiðabliks (Kraftlyftingadeild) (dags. 15.01.2011): „AUÐUNN sigrar á Alþjóðlega réttstöðulyftumótinu á Reykjavík International Games 2011!” – veflykill: http://vu2043.ispcp-01.zebra.is/gamli/frett.php?id_frett=7498&b=1
Það er gott tækifæri á International Dead-Lift Meet – RIG2012 að halda áfram á þeim frægðargrunni sem skapaðist á RIG2011.
Þá er ljóst í ljósi jákvæðrar reynslu af á International Dead-Lift Meet – RIG2011 að fá verður stærri keppnissal í Laugardalshöll undir alþjóðamótið á komandi ári – því að keppnissalurinn í ár á RIG2011 hreinlega sprakk undan miklum fjölda áhugasamra áhorfenda.
Þannig þarf að fá áfram erlenda gestakeppendur í háum gæðaflokki og kemur til álita að nýta HM2011 (Pilzen, Tékklandi) sem heimboðsvettvang á International Dead-Lift Meet-RIG2012. Má hér mæla t.d. með einhverjum erlendum gestakeppanda sem er heiðursmeiðlimur „Frægðarhallar IPF” (International Powerlifting Federation: Hall of Fame).
Þá er frábær möguleiki einnig fyrir hendi að fá VIRTAN ERLENDAN KRAFTLYFTINGAÞJÁLFARA eða kraftlyftingaþjálfunarfræðavísindamann sem skráður er félagsmaður hjá erlendu aðildarsambandi International Powerlifting Federation (IPF)) til að halda ÞJÁLFUNARFRÆÐAFYRIRLESTUR um kraftlyftingaþjálfun á RIG2012.
NB! Kraftlyftingasamband Íslands þarf að senda ósk til IPF um að International Dead-Lift Meet – RIG2012 (eða síðari slík alþjóðamót) verði skráð á Keppnisdagatal IPF (IPF Calendar) og telji þar á eftir m.a. til heimslistastiga á Heimslistum IPF (IPF World Ranking) og geri jafnframt tillögu um að stofnaður verði Heimslisti IPF í réttstöðulyftu (IPF World Ranking: Deadlift).
Það er ljóst að International Dead-Lift Meet-RIG2012 er göfugt samstarfsverkefni allra kraftlyftingaaðildarfélaga Kraftlyftingasambands Íslands.
Því ber öllum kraftlyftingaíþróttaiðkendum, stjórnarmönnum kraftlyftingaaðildarfélaga Kraftlyftingasambands Íslands, stjórnarmönnum Kraftlyftingasambands Íslands sem og stuðningsaðilum kraftlyftingaaðildarfélaga og Kraftlyftingasambands Íslands (fyrirtækjum (lögpersónum) og einstaklingum) að hlúa vel að þeim tignarlega vaxtarsprota sem International Dead-Lift Meet-RIG2012 er - með einu sameiginlegu kraftmögnunarátaki – kraftlyftingaíþróttinni til heilla.
Kraftlyftingadeild Breiðabliks
Myndbönd
Hið glæsilega International Dead-Lift Meet-RIG2011 (kvennakeppni sem og karlar frá léttasta flokki upp í milliþungavigt (93 kg. þfl.).
Auðunn Jónsson (Breiðablik) sigraði m.a. í Stigakeppni karl á International Dead-Lift Meet-RIG2011.
María E. Guðsteinsdóttir (Ármanni og mótshaldari RIG2011) stóð sig vel á International Dead-Lift Meet-RIG2011 (allar lyftur).
Hulda B. Waage (Breiðablik) keppti á International Dead-Lift Meet-RIG2011.
Júlían Jóhann Karl Jóhannsson (Ármanni) lyftir á International Dead-Lift Meet-RIG2011.
Til baka