Mikill fjöldi stefnir á ÍM í bekkpressu
Með inngöngu Kraftlyftingasambands Íslands (KRAFT) í ÍSÍ hefur virkum keppendum fjölgað til muna og vex fjöldi keppenda með hverju stórmótinu á eftir öðru. Til marks um þessa fjölgun er þessa helst fyrsta stigamót ársins (þ.e. mót sem telur til stiga í keppni um kraftlyftingafélag/-deild ársins), en 52 keppendur eru skráðir! (14 Blikar) Til samanburðar er hægt að líta aðeins ár aftur í tímann, til Íslandsmeistaramótsins í bekkpressu 2011. Þá voru keppendur ekki nema rúmlega 30 talsins og árið 2009 voru keppendur ekki nema í kringum 20.
Af þessum tölum sést hvernig innganga KRAFT í ÍSÍ og sú staðreynd að það starfi nú eftir öllum þeim reglum sem því fylgja hefur ekki bara aukið gildi íþróttarinnar heldur einnig auðveldað nýliðum, sem og íþróttamönnum úr öðrum greinum, að hefja feril í kraftlyftingum. Það má einnig bæta því við að með inngöngu í ÍSÍ hefur fjöldi kraftlyftingakvenna margfaldast!
Á svona stóru móti sem ÍM í bekkpressu verður er nauðsynlegt að allt gangi vel fyrir sig og að öll skipulagning sé góð, bæði mótshaldara og keppenda (og aðstoðarmanna/þjálfara þeirra). Keppendur verða að vera með á hreinu þær reglur sem gilda um keppni í kraftlyftingum jafnt sem reglur varðandi vigtun og umgengni á undirbúningsaðstöðu. Mótshaldari hefur að þessu sökum sent út orðsendingu sem keppendur skulu lesa vel.
Upplýsingar um mótsstað og annað má finna á fésbókarsíðu keppninnar.
Til baka