31.12 2011 13:59

Kraftlyftingamenn Breiðabliks 2011

Hulda B. Waage á Íslandsmeistaramótinu í réttstöðulyftu
Auðunn náði 6. sæti í hnébeygju á HM 2011

Stjórn kraftlyftingadeildar Breiðabliks hefur valið Huldu B. Waage sem kraftlyftingakonu Breiðabliks árið 2011 og Auðunn Jónsson sem kraftlyftingakarl Breiðabliks árið 2011.

Valið á Huldu byggist á mjög góðum árangri hennar á innanlandsmótum. Hulda hefur verið í miklum bætingum frá því að hún hóf keppni í kraftlyftingum í janúar á þessu ári, en hennar fyrsta mót var réttstöðulyftukeppnin á Reykjavík International Games þar sem hún tók 117,5 kg í -84kg flokki. Hennar besta réttstaða á þessu ári var svo Íslandsmetslyfta með 179,5 kg í -72 kg flokki! Huldu tókst á sínu fyrsta keppnisári í kraftlyftingum m.a. að verða bikarmeistari kvenna sem og Íslandsmeistari í réttstöðulyftu (-72 kg flokkur). Á upplýsingasíðu KRAFT má sjá yfirlit yfir árangur Huldu

Kraftlyftingakarl Breiðabliks þetta árið er Auðunn Jónsson, en hann á talsvert lengri feril að baki í kraftlyftingum en Hulda og keppti á sínu fyrsta móti árið 1986. Auðunn keppti ekki mikið innanlands þetta árið en átti þess í stað góðum árangri að fagna á mótum erlendis. Hann hóf árið, rétt eins og Hulda, á réttstöðulyftumóti Reykjvaík International Games og sigraði þá keppni með 345 kg lyftu. Réttstaðan var í sviðsljósi þetta árið því næsta mót Auðuns var alþjóðlega boðsmótið GNC ProPerformance Pro Deadlift 2011. Þar átti Auðunn 4. þyngstu lyftu mótsins, 360 kg. Á evrópumeistaramótinu náði Auðunn að lyfta 1037,5 kg í samanlögðu og fékk fyrir það 6. sæti í sínum flokki.

Þau er bæði vel að titlunum komin og er óskað til hamingju með þá.

Til baka