20.12 2011 21:42

Fannar kraftlyftingakarl ársins 2011

Fannar á verðlaunapalli á EM öldunga 2011, sem haldið var í Tékklandi.

Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands (KRAFT) birti í dag á vefsíðu sinni val sitt á kraftlyftingakarli og konu ársins 2011. Fyrir valinu urðu Fannar Gauti Dagbjartsson (Breiðabliki) og María Guðsteinsdóttir (Ármanni). Fannar og María eru vel að titlunum komin, en Fannar hefur sýnt yfirburðarárangur á mótum innanlands sem og á EM öldunga.

Fannar hefur verið á fljúgandi siglingu síðustu tvö ár og tekið miklum framförum. Stjórn KRAFT lagði eftirfarandi afrek til grundvallar vals Fannars:

"Helstu afrek 2011:
Íslandsmeistaramót :
1.sæti, samanlagður árangur 835,0 kg
Íslandsmeistaramót í bekkpressu:
1.sæti, árangur 250,0 kg
Bikarmót Kraftlyftingasambandsins:
1.sæti, árangur 875,0 kg
EM öldunga Tékklandi:
3.sæti, samanlagður árangur 845,0 kg
EM öldunga Tékklandi:
2.verðlaun í bekkpressu, árangur 247,5 kg
EM öldunga Tékklandi:
3.verðlaun í réttstöðulyftu, árangur 295,0 kg"

Fannari og Maríu er báðum óskað til hamingju með titlana!

Til baka