07.01 2012 21:48

Auðunn fær B styrk

Auðunn Jónsson fær úthlutað úr Afrekssjóði ÍSÍ

Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti nú á dögunum styrkveitingar til handa íþróttamönnum úr Afrekssjóði ÍSÍ og Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna árið 2012. Úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ nam um 67 milljónum króna og úr Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna var úthlutað um 10 milljónum kr. Þetta árið fær ein manneskja A styrk, þrettán fá B styrk og 7 fá C styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ.

Einn þeirra afreksíþróttamanna sem fær úthlutað úr Afrekssjóði er kraftlyftingakarl Breiðabliks 2011, Auðunn Jónsson. Auðunn fær í fyrsta sinn 960.000 kr. B styrk sem mun nýtast honum vel og vonandi hafa hvetjandi áhrif á hann í undirbúningi fyrir komandi keppnir.

Auðunn hefur verið einn fremsti kraftlyftingamaður Íslands í áraraðir og var árið 2011 gott keppnisár hjá Auðuni, en hann var í 10. sæti heimslistans í sínum flokki. Það eru ekki margir aðrir íslenskir íþróttamenn sem leika það eftir.

Stjórn kraftlyftingadeildar óskar Auðuni til hamingju með þennan verðskuldaða styrk!

Til baka