10.02 2012 09:29

Meistaraflokkarnir spila í kvöld!

Báðir meistaraflokkarnir í körfuknattleik eru að spila í kvöld. Stelpurnar eru í Smáranum kl. 19:15 og andstæðingarnir eru Laugdælir. Stelpurnar okkar sýndu virkilega góðan leik á móti toppliði Stjörnunnar í síðasta leik og eru til alls líklegar.
Strákarnir fara til Selfoss og leika gegn Fsu á sama tíma. Má búast við hörkuleik en meiðsli og veikindi setja óneitanlega mark sitt á liðið okkar. Þorsteinn Gunnlaugsson sem hefur verið okkar besti leikmaður í vetur er meiddur og Hraunar Karl Guðmundsson er búinn að vera veikur alla vikuna. Það þýðir einfaldlega að aðrir leikmenn þurfa að stíga upp og sanna ágæti sitt, ósköp einfalt mál.
Heimasíðan hvetur alla Kópavogsbúa og nýkjörna og fráfarandi bæjarstjórnir til að fjölmenna í kvöld!
 

Til baka