15.02 2012 10:49

8. flokkur kvenna tryggði sér sæti í úrslitatörneringunni !!

8. flokkur kvenna spilaði núna nýlega á sinni 3. törneringu í vetur, þær spiluðu í B-riðli í þetta skiptið.
Stelpurnar spiluðu við Fjölni, Ármann og Stjörnuna að þessu sinni, stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og unnu alla leikina og það frekar létt meira að segja.

Það var rosalega gaman að sjá hvað stelpurnar hafa tekið miklum framförum í vetur, sóknarleikurinn er mjög góður en skemmtilegast er að sjá þær í vörninni þar sem þær eru frábærar og gaman að sjá hversu vel þær hjálpa hver annarri í vörninni.

Stelpurnar eru duglegar að æfa og æfa að staðaldri 5 sinnum í viku, stelpurnar hafa tekið vel á því að undanförnu, hafa sjaldan verið í betra formi.

Stelpurnar spila á úrslitatörneringu A-riðils í mars, ljóst er að markmið vetrarins eru skýr, það er verðlaunasæti, vonandi tekst stelpunum að uppfylla sín markmið og er undirritaður sannfærður um að þau náist ef að stelpurnar halda áfram að vera jafn duglegar og þær hafa verið í vetur.

Með körfuboltakveðju Benóný Harðarson

Til baka