20.02 2012 21:47
Íslandsmeistarar í Futsal 2012
Strákarnir í 4.flokki karla urðu um helgina Íslandsmeistarar í Futsal. Þeir spiluðu alls 4 leiki í riðlakeppninni og 5 leiki í úrslitum.
Í úrslitaleiknum sigruðu þeir Stjörnuna 1-0 eftir jafnan og spennandi leik. Þeir sigruðu einnig Stjörnuna 1-0 í riðlakeppninni.
Markatalan hjá strákunum var 32-0 sem segir allt sem segja þarf. Strákarnir spiluðu skemmtilegan fótbolta og mikil leikgleði
var hjá hópnum. Stuðningur foreldra við strákana var frábær og eiga þeir hrós skilið fyrir það.
Til baka