Blikaklúbburinn

Blikaklúbbur karla var stofnaður haustið 1993. Tilgangur hans er að styðja við bakið á meistaraflokki karla meðal annars með því að standa fyrir öflugu stuðningsliði.

Félagsmenn í klúbbnum fá aðgangskort á heimaleiki meistaraflokks karla í Pepsí deildinni. Félagsmönnum er boðið að taka þátt í uppákomum fyrir leiki og þiggja veitingar í leikhléi. Blikaklúbburinn stendur fyrir hópferðum á þá útileiki sem eru utan höfuðborgarsvæðisins.

Blikaklúbburinn er kjörinn vettvangur fyrir foreldra að styðja við áhugamál barna sinna og mæta á völlinn til að hvetja áfram Breiðablik og eiga saman góða fjölskyldustund í góðra vina hópi.

Stjórn Blikaklúbbsins árið 2011-2012 skipa:

Andrés Pétursson formaður .(JavaScript must be enabled to view this email address) GSM: 699 2522
Borghildur Sigurðardóttir varaformaður
Björn Hilmarsson gjaldkeri, .(JavaScript must be enabled to view this email address) , GSM: 861 1138
Björgvin Rúnarsson
Guðmundur Jóhannesson
Sigrún Óskarsdóttir
Haukur Valdimarsson
Jón S. Garðarsson

Við sendum fréttabréf reglulega með upplýsingum um það sem er á gerast hjá deildinni. Ef þú ert með tölvupóst getur þú fengið þessar upplýsingar sendar á rafrænu formi.

Hikið ekki við að hafa samband við stjórnarmenn klúbbsins ef þú hafið einhverjar spurningar eða uppástungur varðandi starfsemina.

Blikaklúbbnum býður upp á fjórar tegundir af aðild og geta Blikar valið þá sem þeim hentar best. Hafa má samband við formann eða gjaldkera klúbbsins til að gerast félagi:


Stór-Blikar:
· Ársmiði fyrir tvo á alla heimaleiki í Pepsideild karla og kvenna.
· VIP á efstuhæð í stúku fyrir leiki, með öllu tilheyrandi. Þjálfarinn fer yfir leikinn, tölfræðin og sagan skoðuð. Fyrrum og núverandi leikmenn, aðalstyrktaraðilar og fleiri mæta á svæðið
· Frátekin 2 sæti í stúku
· Kaffi og meðlæti í hálfleik fyrir 2
· Miði á Herrakvöld og Konukvöld Breiðabliks
· Miði á Uppskeruhátíð Breiðabliks
· Veglega Breiðabliksgjöf á hverju ári
· Takmarkað framboð miða( hámark 50 miðar á ári)
· Stuðningsmannafundur á hverju ári með þjálfara, leikmönnum og stjórn.
· Verð 70.000 kr. staðgreitt ( 5.800 kr.- á mánuði með greiðslukorti)

Fjölskyldu-Blikar:
· Ársmið fyrir 2 á alla heimaleiki í Pepsideild karla og kvenna.
· Kaffi og meðlæti í hálfleik fyrir 2
· Blikagjöf á hverju ári.
· Stuðningsmannafundur á hverju ári með þjálfara, leikmönnum og stjórn.
· Verð 46.800 kr. staðgreitt ( 3.900kr.- á mánuði með greiðslukorti)

Sport-Blikar: Sama og Blikaklúbburinn í dag
· Ársmið fyrir einn á alla heimaleiki í Pepsideild karla og kvenna.
· Kaffi og meðlæti fyrir einn á heimaleikjum
· Verð 26.400 kr. staðgreitt ( 2.200 kr.- á mánuði með greiðslukorti)

Stuðnings-Blikar:
· Blikagjöf
· Fréttabréf í tölvupósti um það sem er á döfinni
· Verð 14.400 kr. staðgreitt ( 1.200 kr.- á mánuði með greiðslukorti)


Með Blikakveðju,

Andrés Pétursson
formaður