06.02 2012 23:48
Karateþing
Karateþing verður haldið laugardaginn 18. febrúar í fundarsal ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal kl. 10.00 - 15.00. Þingstörf samkvæmt lögum sambandsins.
Ein lagabreyting verður lögð fyrir þingið til að samræma lög KAÍ og ÍSÍ. Framvegis munu héraðssambönd og íþróttabandalög sem eru með karatefélög eða -deildir innan sinna raða eiga einn fulltrúa á Karateþingum sem hafa tillögu og atkvæðarétt.
Við Karateblikar eigum 10 þingsæti og óskum eftir áhugasömu fólki til að skipa þau. Endilega hafa samband við Indriða ef áhugi!
| Félag | fjöldi iðkanda | Fulltrúar |
| Karatedeild Breiðabliks | 270 | 10 |
| Karatefélagið Þórshamar | 268 | 10 |
| Karatedeild Fjölnis | 121 | 8 |
| Karatedeild Fylkis | 121 | 8 |
| Karatedeild Hauka | 112 | 8 |
| Karatefélag Reykjavíkur | 101 | 8 |
| Karatefélag Akureyrar | 82 | 7 |
| Karatefélag Akraness | 72 | 6 |
| Karatedeild Aftureldingar | 46 | 6 |
| Karatedeild Víkings | 21 | 4 |
| Karatedeild Völsunga | 4 | 2 |
| Karatefélag Suðurlands | 2 | |
| 1218 | 79 | |
| Skv. starfsskýrslum ÍSÍ fyrir árið 2011 |
