05.02 2012 13:07
Heiða fer til Azerbaijan á EM U21 árs
Aðalheiður Rósa er nú á fullu að pakka í töskur fyrir spennandi keppnisferð en hún er að fara til Baku, Azerbaijan á EM U21 árs, keppir í kata föstudaginn 10.febrúar. Í stuttu spjalli við fréttaritara sagði Heiða "ég ferðast með Dönunum aftur, ætla að sjálfsögðu að gera mitt besta og ná sem lengst" En fyrir þá sem ekki vita fór Heiða með Dönum á HM í haust. Ferðin hefst á þriðjudaginn en þá heldur Heiða til Kaupmannahafnar og svo með Dönum áfram alla leið til Baku í Azerbaijan.
Það verður spennandi að sjá hvernig okkar stúlku gengur í Azerbaijan og óskum við henni virkilega góðs gengis!
Til baka