Stórmót ÍR um helgina

ÍR-ingar halda Stórmót ÍR í frjálsíþróttum í 16. sinn um helgina. Mótið sem fram fer í Laugardalshöllinni hefur unnið sér sess sem langstærsta opna innanhússmótið frjálsum sem haldið er árlega hér á landi. Keppt er í aldursflokkum frá 8 ára og yngri upp í karla- og kvennaflokk. Þátttakendur eru 740 frá 23 félögum víðs vegar að af landinu. Fjölmennastir eru ÍR-ingar með 200 keppendur, Breiðablik sendir 84 og FH-ingar 76. 46 Færeyingar keppa á mótinu, að þessu sinni frá tveimur félögum Treysti og Hvirlan, en þetta er fjórða árið í röð sem þeir taka þátt í Stórmóti ÍR.


Á laugardagsmorgun hefst keppni kl. 9:00 með keppni í fjölþraut barna 10 ára og yngri samkvæmt keppniskerfi Alþjóða frjálsíþróttasambandsins IAAF sem nefnist á ensku „Kids Athletics“. Á sama tíma hefst hefðbundin keppni í flokkum 11-14 ára en fjölmennasta keppnisgreinin er 60m hlaup 12 ára stúlkna þar sem 58 þátttakendur eru skráðir til leiks. Eftir því sem líður á laugardaginn hefjast keppnisgreinar í eldri aldursflokkum. Á sunnudag er svo keppt í flokkum 13 ára og eldri en keppni lýkur kl. 16:10.

Blikar eru hvattir til að mæta og hvetja sitt fólk.

Áfram Breiðablik!

-ss
 

Til baka