03.02 2012 12:57

MÍ 15-22 um helgina

Nú um helgina fer fram Meistaramót Íslands 15-22 ára í Laugardalshöll. Breiðablik sendir 22 keppendur en alls eru 240 keppendur skráðir á mótið.
Mótið hefst klukkan 10 á laugardagsmorgun og er áætlað að því ljúki kl. 16:30 á sunnudag.

Allir aðstandendur eru hvattir til að mæta og styðja sitt fólk, þetta verður hörkukeppni!

Áfram Breiðablik!!

-ss

Til baka