MÍ 15-22 ára lokið – 15 Íslandsmeistaratitlar í Kópavoginn!
MÍ 15-22 ára lauk síðdegis á sunnudegi. Heildarstigakeppnina vann ÍR með 497,8 stig en þeir sendu 67 keppendur á mótið. Breiðablik lenti í öðru sæti með 209,5 stig en frá okkur fóru 22 keppendur sem stóðu sig mjög vel.
Piltar 18-19 ára unnu sinn flokk með 43 stig en næstir voru ÍR-ingar með 34 stig. Piltar 15 ára unnu einnig sinn flokk og náðu í 53 stig en næstir þeim urðu HSÞ-piltar með 44 stig. Glæsilegur árangur hjá þessum ungu piltum okkar!
Keppendur Breiðabliks náðu á þessu móti í 15 Íslandsmeistaratitla:
Esther Rós Arnarsdóttir í flokki 15 ára í 60m, 200m og 800m
Ólafur Werner Ólafsson í flokki 15 ára í 60m og 200m
Ingi Rúnar Kristinsson í flokki 18-19 ára í 60m og 60m grind
Stefanía Valdimarsdóttir í flokki 20-22 ára í 400m
Jónas Rafn Sigurjónsson í flokki 18-19 ára í langstökki
Krister Blær Jónsson í flokki 16-17 ára í þrístökki
Valdimar Friðrik Jónatansson í flokki 15 ára í stangarstökki
Arna Ýr Jónsdóttir í flokki 16-17 ára í stangarstökki
Piltasveit 15 ára í 4x200m boðhlaupi
Piltasveit 16-17 ára í 4x200m boðhlaupi
Stúlknasveit 18-19 ára í 4x200m boðhlaupi
Til hamingju keppendur og Blikar með þessi afrek!!
Öll úrslit eru á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/urslitib1803D1.htm
Myndir frá mótinu eru á https://picasaweb.google.com/blikarfrjalsar
-ss