Frábær árangur hjá okkar fólki á RIG!
Eins og fram hefur komið var frjálsíþróttahluti RIG haldinn sl. laugardag. Ellefu keppendur voru skráðir til leiks frá Breiðabliki. Er skemmst frá því að segja að þeir stóðu sig frábærlega.
Stefanía Valdimarsdóttir sigraði örugglega í 400m hlaupi á 56,96 sek. Fyrir átti hún tímann 57,05sek. Ingi Rúnar Kristinsson varð þriðji í 60m er hann hljóp á 7,12 og stórbætti sinn fyrri árangur. Hann varð í öðru sæti í stangarstökki með stökk upp á 4,70 og jafnaði þar sinn besta árangur í greininni. Reynir Zoega varð annar í 800m hlaupi pilta 13-14 ára á tímanum 2:14,27 en fyrir átti hann best 2:20,46, Esther Rós Arnarsdóttir varð þriðja í 800m kvenna á tímanum 2:24,27 og loks var boðhlaupssveit UMSK í fyrsta sæti í 4x200 á tímanum 3:30,95. Auk þessa árangurs var Irma Gunnarsdóttir að stórbæta árangur sinn í 60m, hljóp á 8,08 en átti fyrir 8,28. Ólafur Werner jafnaði sinn besta tíma í 60m 7,51 sek.
Framundan er Stórmót ÍR um næstu helgi og þá verður án efa fjör í Höllinni!
-ss
Til baka