FH-ingar bikarmeistarar
Bikarkeppni FRÍ fór fram í Laugardalshöll í dag, laugardag. Að þessu sinni urðu FH-ingar bikarmeistarar en þeir sigruðu með 107 stig samtals. Í öðru sæti varð A-lið ÍR með 102,5 stig. Sameiginlegt lið Breiðabliks, Ármanns og Fjölnis endaði í fjórða sæti með samtals 76,5 stig. A-lið ÍR vann stigakeppnina hjá konum en FH-ingar hjá körlum. Lið Breiðabliks, Ármanns og Fjölnis varð í fjórða sæti í kvennaflokki en í fimmta sæti í karlaflokki.
Okkar fólk sigraði í eftirtöldum greinum;
Stefanía Valdimarsdóttir vann 400m hlaup á tímanum 56,87 sek.
Arndís Ýr Hafþórsdóttir sigraði í 1500m hlaupi á 4:47,57 min.
María Rún Gunnlaugsdóttir sigraði í 60m grind á tímanum 8,98 sek.
Ásdís Hjálmsdóttir vann kúluvarpið, kastaði 14,59 m
Öll úrslit má sjá á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/urslitib1813D1.htm
Þess má síðan geta að okkar fólk í stúkunni stóð sig með eindæmum vel og var langmest áberandi í stuðningi við sitt fólk! Til hamingju með það, vel gert !!
Myndir frá mótinu eru hér: https://picasaweb.google.com/blikarfrjalsar/2012BikarInni#
-ss
Til baka