Bikarkeppni FRÍ !
Sjötta Bikarkeppni FRÍ fer fram í Laugardalshöll á morgun, laugardag. Keppni hefst kl. 13 en áætlað er að keppni verði lokið fyrir kl. 16. Sex lið eru skráð til keppni að þessu sinni: A- og B-lið ÍR, FH, HSK, Norðurland (sameiginlegt lið UMSS, UMSE, UFA, HSÞ) og sameiginlegt lið Breiðabliks, Ármanns og Fjölnis.
Alls eru 153 keppendur skráðir þátttakendur frá þessum liðum og því sem næst allt okkar besta keppnisfólk mætir til þátttöku.
Í fyrra sigraði A lið ÍR bæði karla og kvennakeppnina og samanlagt líka. Í öðru sæti var lið Norðurlands og HSK í því þriðja. Miðað við frammistöðu keppenda á undanförnum mótum og skráningar, má búast við mjög spennandi keppni að þessu sinni.
Allir Blikar eru hvattir til að mæta og hvetja sitt lið áfram, mótið er stutt og snarpt og stuðningur við keppendur skiptir miklu máli!
Áfram BÁF!!
-ss
