Mikið um að vera næstu helgi !

Það er alltaf nóg um að vera hjá þeim sem eru í Breiðablik, en næstu helgi verður Póstmótið í gangi í körfunni og spilað bæði í Smáranum og Kórnum. Þá er Mfl. karla að spila við FH í Fífunni á laugardag kl. 11:00 og er það leikur í fotbolti.net mótinu. Getraunakaffið verður á sínum stað og nýr getraunaleikur að fara af stað og allir velkomnir að koma í tengibyggingu Fífunnar upp úr kl. 10:30 og kaupa sér kaffi og tippa. Íþróttaskóli Breiðabliks breytir svo um umhverfi að þessu sinni og verður í Kársnesinu þar sem okkar fólk kennir ungviðinu að stíga sín fyrstu spor í íþróttum.

Það er gaman að vera Bliki   !

Til baka