Niðurgreiðsla bæjarfélags

[Kópavogur]   [Reykjavík]   [Garðabær]

Iðkandi með lögheimili í Kópavogi:
Sjá nánar á vef Kópavogsbæjar

Kópavogsbær veitir foreldrum / forráðamönnum barna á aldrinum 5-17 ára styrki vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar. Frá og með haustinu 2011 verður greiddur styrkur vegna barna sem fædd eru á árunum 1994 - 2006. Styrkur fyrir eina grein getur orðið allt að 12 þúsund krónur á ári. Hvert barn getur fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina og samtals getur styrkurinn því orðið kr. 24.000,- að hámarki á ári. Ef iðkun greinar er annarskipt þá er greitt hálft gjald fyrir hverja önn að hámarki kr. 6.000,-, þó aldrei hærra en kr. 12.000,- fyrir árið.

Framkvæmd niðurgreiðslunnar er þannig háttað að Breiðablik innheimtir æfingagjöldin og sér síðan um að sækja styrkinn til bæjarins. Þetta þýðir að ef æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 30.000,- greiðir foreldri/forráðamaður kr. 18.000,- til félagsins og félagið sækir framlagið kr. 12.000,- til bæjarfélagsins.

Iðkandi með lögheimili í Reykjavík:
Sjá upplýsingar um Frístundakortið.

Framkvæmd niðurgreiðslunnar er þannig háttað að foreldri/forráðamaður sendir póst á .(JavaScript must be enabled to view this email address) og biður um að iðkandi verði stofnaður í Rafrænni Reykjavík. Þegar foreldri/forráðamaður hefur ráðstafað styrknum til félagsins er upphæð æfingagjalds (greiðsluseðils eða í Nóra) lækkuð sem styrknum nemur og hægt er að ganga frá greiðslu æfingagjaldsins.

Iðkandi með lögheimili í Garðabæ: 
Sjá upplýsingar um Hvatapeninga

Æfingagjaldið er greitt að fullu og foreldri/forráðamaður sendir póst á .(JavaScript must be enabled to view this email address) og óskar eftir að fá senda greiðslukvittun fyrir tímabilið sem búið er að greiða (ekki er nóg að framvísa greiðslukvittun úr heimabanka þegar sótt er um Hvatapeningana).