Greiðsla æfingagjalda
Breiðablik hefur tekið í notkun skráningar- og greiðslukerfið Nóra. Æfingagjöld verða innheimt í gegnum kerfið en einnig mun það halda utan um póslista, símanúmer forráðamanna, mætingar og fleira svo mjög mikilvægt er að allir iðkendur séu skráðir inn í kerfið.
Nýskráning forráðamanns:
- Einfalt er að skrá sig inn í kerfið og er það gert með því að fara á síðuna https://breidablik.felog.is og smella á "Nýskráning" neðst í innskráningarglugganum (einungis 18 ára og eldri geta skráð sig inn). Athugið að haka þarf við "Samþykkja skilmála".
- Þar setur forráðamaður inn grunnupplýsingar: kennitölu, netfang og gsm númer og velur lykilorð. Forráðamenn geta alltaf farið aftur inn í kerfið og breytt þessum grunnupplýsingum. Hægt er að fá nánari upplýsingar á .(JavaScript must be enabled to view this email address).
- Þegar þessu er lokið opnast gluggi með yfirliti yfir iðkendur í fjölskyldunni. Ef barnið er ekki á listanum skal ýta á "Nýr iðkandi", velja barnið í flettivalmyndinni og skrá. Þegar iðkandinn hefur verið skráður er ýtt á "Námskeið/flokkar í boði" fyrir aftan nafn barnsins og þar er réttur æfingahópur valinn. Athugið að ef greiðandi er með annað lögheimili en iðkandinn skal hafa samband á .(JavaScript must be enabled to view this email address).
ATHUGIÐ: Nú er hægt að velja eftirtalda greiðslumáta í Nóra:
* Greiðslukort
* Greiðsluseðill (ef óskað er eftir að skipta gjaldinu á greiðsluseðla skal taka það fram í athugasemdum).
* Millifærsla - sjá reikningsnr. hér - þá er einnig mikilvægt að senda kvittun á .(JavaScript must be enabled to view this email address)