Greiðsla æfingagjalda
Æfingagjöld eru innheimt í gegnum skráningar- og greiðslukerfið Nóra en kerfið er einnig notað til að halda utan um póstlista, símanúmer forráðamanna, mætingar og fleira svo mjög mikilvægt er að allir iðkendur séu skráðir inn í kerfið.
Hægt er að velja eftirfarandi greiðslumáta í Nóra: Greiðslukort, greiðsluseðil* eða millifærslu**.
* ef óskað er eftir að skipta gjaldinu á greiðsluseðla skal taka það fram í athugasemdum).
** sjá reikningsnr. hér - þá er einnig mikilvægt að senda kvittun á .(JavaScript must be enabled to view this email address)
Æfingagjöldin miðast við allt tímabilið, ef iðkandi byrjar æfingar á miðju tímabili skal velja millifærsla og taka fram í athugasemdum hvenær iðkandi hóf æfingar, þegar starfsmaður hefur breytt upphæðinni fá forráðamenn póst og geta þá farið aftur inn í kerfið og valið með hvaða hætti þeir vilja ganga frá greiðslunni.
Nýskráning forráðamanns:
- Farið á síðuna https://breidablik.felog.is og smellið á "Nýskráning" neðst í innskráningarglugganum (einungis 18 ára og eldri geta skráð sig inn). Athugið að haka þarf við "Samþykkja skilmála".
- Þar setur forráðamaður inn grunnupplýsingar: kennitölu, netfang og gsm númer og velur lykilorð. Forráðamenn geta alltaf farið aftur inn í kerfið og breytt þessum grunnupplýsingum. Hægt er að fá nánari upplýsingar á .(JavaScript must be enabled to view this email address).
- Þegar þessu er lokið opnast gluggi með yfirliti yfir iðkendur í fjölskyldunni. Ef barnið er ekki á listanum skal ýta á "Nýr iðkandi", velja barnið í flettivalmyndinni og skrá. Þegar iðkandinn hefur verið skráður er ýtt á "Námskeið/flokkar í boði" fyrir aftan nafn barnsins og þar er réttur æfingahópur valinn. Athugið að ef greiðandi er með annað lögheimili en iðkandinn skal hafa samband á .(JavaScript must be enabled to view this email address).
Best er að senda fyrirspurn á .(JavaScript must be enabled to view this email address) en einnig er hægt að hringja í símatíma á þri. og fim. kl. 9.30-11.30 í gsm. 860-8095.
(Símatímar verða ekki í júní - september 2012)